Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð að heimili í Garðabæ hinn 5. júlí 2016 eftir að Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, gekk þar berserksgang, braut allt og bramlaði og hafði í hótunum við þáverandi eiginkonu sína.
Þegar lögreglan kom á staðinn hafði Ragnar flúið vettvang og skilið íbúðina eftir í slæmu ástandi. Sjáanlegar skemmdir voru víða.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fékk KSÍ upplýsingar um málið frá nágrönnum hjónanna en aðhafðist ekkert.
Fjallað er um málið á vef Fréttablaðsins en þar segir að nokkrum tímum áður en þetta atvik átti sér stað var heimkomu landsliðsmanna eftir EM í fótbolta í Frakklandi fagnað með pompi og prakt í miðbæ Reykjavíkur og var Ragnar uppi á sviði á Arnarhóli ásamt öðrum landsliðsmönnum.
Hér er frétt Fréttablaðsins en þar segir að þrátt fyrir tilraunir lögreglunnar hafi þau ekki náð sambandi við Ragnar það kvöld en nokkrum dögum síðar mætti hann í skýrslutöku.