„Krónutölur sem ég að efast um að nokkur hér inni kæri sig um að sjá“

Inga Sæ­land for­mað­ur Flokks fólks­ins sagð­i Hall­dór Benj­a­mín Þor­bergs­son fram­kvæmd­a­stjór­a Sam­tak­a at­vinn­u­lífs­ins eiga að gang­a að samn­ing­um við Efling­u þeg­ar í stað.

Hún lýst­i því í Silfr­in­u í dag að Efling og fé­lag­ar þess séu ó­lík­ir öðr­um með þeim hætt­i að þau þiggj­a með lægst­u laun­un­um í sam­fé­lag­in­u og að það eigi að taka til­lit til þess. Hún gagn­rýnd­i orð Hall­dórs Benj­a­míns um trún­að og að inn í því væri aug­ljóst að ekki væri tek­in inn raun­ver­u­leg tekj­u­stað­a þeirr­a sem Sól­veig Anna berst fyr­ir.

„Kröf­urn­ar sem Efling geng­ur fram með eru hóf­leg­ar. Þett­a eru krón­u­töl­ur sem ég að ef­ast um að nokk­ur hér inni kæri sig um að sjá,“ sagð­i Inga og að hæst­u krón­u­töl­urn­ar sem far­ið er fram á í laun­a­töfl­u Efling­ar séu um 480 þús­und.

„Það er eft­ir fimm ára vinn­u og það er hæst­a laun­a­þrep­ið og fyr­ir skatt. Þess­ir ein­staklingar eru að fá um 370 til 380 þús­und út­borg­að,“ sagð­i Inga og hélt á­fram:

„Þett­a eru ein­staklingarnir sem fara ekki í greiðsl­u­mat. Þett­a er fólk sem hef­ur ekki efni á því að losn­a und­an þess­um græðg­i­s­vædd­a ok­ur­leig­u­mark­að­i,“ sagð­i Inga og að það væri af­leitt ef SA bend­i að­eins á það að þau séu bund­in trún­að­i við áður gerð­a samn­ing­a og að þau ættu að semj­a við Efling­u.

Hægt er að horf­a a þátt­inn hér en í hon­um rædd­i Sig­ríð­ur Hag­a­lín einn­ig við Þor­stein Víg­lunds­son fyrr­ver­and­i ráð­herr­a, Bjark­ey Ol­sen for­mann fjár­lag­a­nefnd­ar al­þing­is og þing­kon­u VG og við Gylf­a Dal­mann Aðal­steins­son hjá HÍ.

Þau ræddu enn eftir það efnahagsstöðuna í samfélaginu og stöðu SA og Eflingar í kjaraviðræðunum en Efling undirbýr nú verkfall.

Fleiri fréttir