Kristrún segir að Bjarni þori ekki að mæta sér í Kastljósi: „Þessu máli er engan veginn lokið“

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar segir að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins þori ekki að mæta henni í Kastljósi í kvöld.

„Fjármálaráðherra þorir ekki að mæta mér í Kastljósi. Enda veit ráðherra að hann hefur vonlausan málstað að verja í bankasölumálinu. Þetta veit öll þjóðin,“ segir Kristrún á Facebook.

Til stóð að Kristrún og Bjarni myndu mætast í Kastljósi, en Kristrún segir að hann treysti sér ekki til þess.

„Vill ekki eiga orðaskipti við formann stjórnarandstöðuflokks um bankasöluna í beinni sjónvarpsútsendingu. Þessu máli er engan veginn lokið,“ segir Kristrún.

Fleiri fréttir