Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar er nýr formaður flokksins, en það varð ljóst á landsfundi flokksins sem fer fram þessa dagana. Kristrún hlaut 94.5 prósent atkvæða.
Kristrún greindi frá framboði sínu þann 19. ágúst og skilaði inn framboði á skrifstofu flokksins með tilheyrandi undirskriftum þann 14. október.
Hún var eini frambjóðandinn sem sóttist eftir kjöri til formanns flokksins, en hún tekur við af Loga Einarssyni.
Kristrún er fædd árið 1988 og lauk hún stúdentsprófi frá MR árið 2008. Hún lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands og hélt svo til Bandaríkjanna, þar sem hún lauk MA-prófi í alþjóðahagfræði frá Boston háskóla og alþjóðafjármál frá Yale háskóla.
Kristrún hefur komið víða við og starfaði meðal annars sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka, sérfræðingur í greiningadeild fjárfestingabankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum og aðalhagfræðingur Kviku banka.
Hún var kjörin inn á Alþingi, sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður fyrir Samfylkinguna, en núna er hún orðin formaður flokksins.