Kristrún í formanninn: „Fólkið veit að við getum gert betur“

Kristrún Frostadóttir tilkynnti í dag á blaðamannafundi sem haldinn var í Iðnó að hún býður fram til formanns Samfylkingarinnar.

Komið hafði fram nú í júní síðastliðnum að Logi Einarsson myndi ekki gefa kost á sér og nýlega tilkynnti Dagur B. Eggertsson að hann myndi heldur ekki stíga fram.

Kristrún segir að í samtölum sínum víðsvegar um landið hafi komið í ljós að hægt sé að stýra landinu betur

„Fólkið veit að við getum gert betur. Fólkið veit að við getum tekist á við stórar samfélagslegar áskoranir saman.“

Nánar er fjallað um framboðstilkynninguna á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir