Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri og einn eigenda fjölmiðilsins 24 - þínar fréttir, fékk hjartaáfall fyrr í mánuðinum og þakkar starfsfólki Landspítalans.
Kristjón greinir frá málinu á Facebook-síðu sinni.
„Sjálfur kalla ég þetta tognun á hjarta eftir að hafa ofkeyrt mig í starfi síðustu ár, fyrst sem blaðamaður og seinna ritstjóri á hinum ýmsu miðlum og hafa ekki passað nægilega vel uppá heilsuna,“ segir Kristjón meðal annars í færslu sinni.
Kristjón var staddur inni í stofu heima hjá sér þegar hann fann fyrir þyngslum í brjósti. Hann segist hafa hringt á 112 en fljótlega skellt á, „ég trúði því ekki að ég væri að fá hjartaáfall.“
„Mínútu síðar hneig ég niður inni á salerni þegar þyngslin ágerðust og ólýsanlega sár stingur leiddi út í hönd. Líklega aldrei upplifað annan eins sársauka.
Sambýliskona mín hringdi umsvifalaust á 112 þar sem ég var ekki í ástandi til þess sjálfur. Viðbrögðin voru ótrúleg.
Örfáum mínútum síðar voru minnst fjórir starfsmenn Landspítalans inni á gólfi hjá mér. Fluttu þeir mig með hraði í sjúkrabíl á spítalann. Algjörir fagmenn sem gengu úr skugga um að ég væri með meðvitund allan tímann,“ segir Kristjón jafnframt í færslu sinni.
Hann segist skrifa fæsluna til að þakka starfsfólki Landspítalans. „Nú er heilbrigðiskerfið okkar oft gagnrýnt og starfsmenn þess líka. Mín upplifun eftir þessa erfiðu lífsreynslu er að við eigum ótrúlegan mannauð sem oft má þola ósanngjarna gagnrýni í undirmönnuðu heilbrigðiskerfi.“
Kristjón segist hafa upplifað fagmennsku og að allir hafi hugsað um hann af mennsku, nærgætni og mikilli hlýju. „Þvílíkar hetjur og fagfólk sem við eigum.“
Að sögn Kristjóns er hann allur að braggast og ná fyrri styrk.
„Kæra heilbrigðisstarfsfólk, takk fyrir að hugsa svona fallega um mig. Því mun ég aldrei gleyma og það flýtti fyrir bata mínum og vegna ykkar er ég allur braggast og ná fyrri styrk.
Ég vil líka þakka konunni minni fyrir að vera til staðar eftir að ég veiktist og á meðan ég var að ná bata.
Til vina minna segi ég, hugsið vel um ykkur og passið upp á heilsuna.
Takk fyrir magnaða fólk sem starfið í heilbrigðiskerfinu. Þið eruð hetjur með hjarta úr gulli!
Við erum heppin að eiga ykkur að!
Takk!“ segir Kristjón að lokum.