„Er ekki kominn tími til að fletta ofan af spillingunni á Íslandi?“
Þessari spurningu veltir Kristján Hreinsson skáld upp í aðsendri grein í Fréttablaðinuí dag en í henni ber hann Tómas Knútsson, forsvarsmann Bláa hersins, þungum sökum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kristján setur stórt spurningarmerki við vinnubrögð Tómasar og Bláa hersins en það gerði hann meðal annars í tveimur blaðagreinum á síðasta ári.
„Ég hef sýnt og sannað að þar er ekki á ferðinni neinn her, heldur einn hermaður sem fær helling af peningum úr vösum skattgreiðenda fyrir að gera ekkert nema skreyta sig stolnum fjöðrum. Þetta hef ég sýnt og sannað með svo óyggjandi hætti að eigandi Bláa hersins hefur ekki mótmælt einu orði af því sem í greinum mínum kemur fram. Grunnurinn er einnig sá að Blái herinn fær styrki þrátt fyrir að hann skili ekki ársreikningi. Þetta er ólöglegt og opinberum aðilum er því ekki stætt á að veita Bláa hernum slíka styrki.“
Í grein sinni segist Kristján hafa sent ráðuneyti umhverfismála skrif sín í fyrra og kveðst hafa vonað að menn áttuðu sig á þeirri „spillingu“ sem hér er á ferð.
„Blái herinn skreytir sig stolnum fjöðrum, allar ársskýrslur eru fullar af hreinni lygi og hinn svokallaði her hefur fengið styrki til verkefna sem aldrei hafa verið framkvæmd.“
Kristján segir að núna sé staðreyndin sú að bláa höndin ætli að veita Bláa hernum 7,5 milljónir króna í styrk.
„Sjö og hálf milljón fer frá sjálfstæðismanni til Bláa hersins og skattgreiðendur borga. Ég gæti skilið þennan vitleysisgang ef Blái herinn hefði gert eitthvað til að verðskulda sjö og hálfa milljón í styrk. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi svokallaði her hefur ekkert unnið sem vert er að styrkja. Engu að síður er mokað peningum í mann sem laug til sín fálkaorðu með því að þykjast vera æðislega duglegur og með því að birta af sér myndir þar sem hann er í fjöruferð með forseta Íslands. Þetta er ekkert grín,“ segir Kristján harðorður.
Hann telur það segja ákveðna sögu að Tómas hafi ekki svarað greinum hans í fyrra.
„Þá var eiganda Bláa hersins boðið að mótmæla orðum mínum. En hann sá að það myndi ekki gera honum gagn. Vitandi af eigin lygavef ákvað hann að þræta ekki. En hvað gerist svo. Hann nuddar sér utan í stjórnendur flokksvélarinnar og vélabrögðin láta ekki á sér standa. Niðurstaðan er: Blái herinn fær nær 10 milljónir á árinu 2021 fyrir að gera ekki neitt. Er ekki kominn tími til að fletta ofan af spillingunni á Íslandi?“
Grein Kristjáns í heild sinni.