Kristján á­hrifa­valdurinn sem var hand­tekinn á Spáni

Kristján Einar Sigur­björns­­son er á­hrifa­valdurinn sem hand­­tekinn var á Spáni í mars síðast­liðnum. Hring­braut greindi frá málinu fyrr i dag.

Nú gengur mynd­band manna á milli á sam­­fé­lags­­miðlum sem sýnir Kristján í járnum. Ekki liggur fyrir hvers vegna Kristján var hand­­tekinn en hann var hand­­tekinn fyrri hluta mars­­mánaðar.

Kristján Einar er 24 ára gamall og er trú­l­ofaður Svölu Björg­vins­dóttur. Hann var sak­­felldur fyrir fíkni­efna-og vopna­laga­brot í fyrra og auk þess sýknaður fyrir líkams­­á­rás í Lands­rétti. Kristján opnaði sig meðal annars um for­tíð sína á sam­fé­lags­miðlum í desember síðast­liðnum.

Sagðist hann vera venju­legur maður á Insta­gram við það til­efni. Síðunni hans hefur nú verið eytt á miðlinum.

„Ég er ó­­­­­sköp venju­­­legur maður. Ég á barn. Ég vinn sem sjó­­­maður. Ég á mína for­­­tíð sem að hluta er ó­­­­­upp­­­­­gerð. Ég kynntist stúlku. Stúlkan varð kærasta mín. Kærasta mín er far­­­sæll lista­­­maður og verk hennar vekja á­huga. Fjöl­­­miðlar fjalla um hana og það sem hún gerir. Ég á því ekki venjast og mín verk hafa til þess dags ekki vakið at­hygli fjöl­­­miðla eða flesta þeirra sem þetta lesa. Það hefur breyst,“ skrifaði Kristján á miðlinum í desember.

„Ég hef mark­visst unnið í sjálfum mér og náð árangri. Ég er ekki kominn á leiðar­enda tek að­eins einn dag í einu. Ég hlaut á síðasta ári dóm. Ég undi ekki niður­­­­­stöðu þess dóms og hef á­frýjað niður­­­­­stöðu hans til Lands­réttar. Þeirra niður­­­­­stöðu bíð ég. Af til­­­lit­­­semi við aðila læt ég vera að fjalla sér­­­stak­­­lega um málið. Þeir sem hafa á því á­huga geta kynnt sér málið og um leið varnir mínar.“

Lesa má við­talið við Kristján Einar hér.

Fleiri fréttir