Kristín Soffía sat í uppstillinganefnd Samfylkingar en telur prófkjör betri leið

Kristín Soffía Jóns­dóttir, borgar­full­trúi Samfylkingarinnar og ein þeirra sem sat í upp­stillinga­nefnd Sam­fylkingarinnar fyrir alþingiskosningarnar í haust, telur að próf­kjör sé betri leið til að raða á lista

Hún sat nú í annað sinn í upp­stillinga­nefnd þrátt fyrir að styðja ekki þessa leið. Hún segir að ferlið hafi ekki gengið á­falla­laust og að henni finnist fyndið að tals­fólk upp­stillinga telji próf­kjör ala á sundrung og ill­indum.

Listarnir í Reykja­víkur­kjör­dæmunum voru sam­þykktir í gær. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður, skipar fyrsta sæti í Reykja­víkur­kjör­dæmi norður, Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður, tekur annað sæti, Dag­björt Hákonar­dóttir, lög­fræðingur, tekur þriðja sæti, Magnús Árni Skjöld, dósent, tekur hið fjórða, og Ragna Sigurðar­dóttir, for­seti UJ, tekur fimmta sæti.

Krist­rún Mjöll Frosta­dóttir, hag­fræðingur, mun síðan skipa fyrsta sæti í Reykja­víkur­kjör­dæmi norður, Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, al­þingis­maður, skipar annað sæti, Viðar Eggerts­son, leik­stjóri, tekur þriðja sætið, Vil­borg Odds­dóttir, fé­lags­ráð­gjafi, tekur hið fjórða, og Birgir Þórarins­son, tón­listar­maður, tekur fimmta.

Vífill Sigurðs­son spyr Kristínu hvort það sé ekki eitt­hvað rangt við að taka „flótta­konu“ úr VG fram fyrir vara­þing­mann flokksins til margra ára og á þá við Rósu Björk Brynjólfs­dóttur.

Kristín svarar því og segir að það sé lík­lega ekki hægt að beita rétt eða rangt kvarða á slíkar á­kvarðanir.

„Enginn veit neitt og allir eru að gera sitt besta. Og hverju erum við að breyta ef allir eiga að geta gengið að “sínum” sætum vísum?“

Fleiri fréttir