Kosninga­klúður hjá Vinstri grænum: „Setjum X- við.....“

Á Face­book hópnum Al­gjör­lega ó­á­huga­verðar stjórn­mála­upp­lýsingar er bent á hlægi­leg mis­tök hjá fram­boði Vinstrihreyfingin-grænt framboð í Hafnar­firði.

Einn með­limur hópsins skrifar færslu og segir:

„Er þetta í fyrsta sinn sem einn flokkur kaupir aug­lýsingar til að segja fólki að kjósa annan flokk?“

Með færslunni fylgir mynd af aug­lýsingu Vinstri grænna, en sjón eru sögu ríkari

Myndin

„Göngum lengra í Hafnar­firði. Setjum X við D!“

Eins og flestir vita er D bók­stafur Sjálf­stæðis­flokksins og eru þetta því frekar pín­leg mis­tök hjá Vinstrihreyfingunni nema það sé komið á kosninga­banda­lag í Hafnar­firði sem við vitum ekki af.

Málið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og hefur verið gert mikið grín af þessum mistökum hjá Vinstrihreyfingunni.

Fleiri fréttir