Komust óvænt í úrslitakvöld Söngvakeppninar:„Við erum búin að vera í einhverju rosalegu limbói í viku“

Það er ó­hætt að segja að það hafi verið al­gjör til­finninga­rússí­bani þegar hljóm­sveitin Celebs komst ó­vænt í úr­slita­kvöld Söngva­keppninnar 2023. Celebs tók þátt í fyrra undan­úr­slita­kvöldinu, en komst ekki beint á­fram þar sem það munaði tveimur at­kvæðum á þeim og næsta keppanda.

Celebs er skipað syst­kinunum Val­geiri Skorra, Hrafn­keli Huginn og Kötlu Vig­dísi. Þau voru að horfa á seinna undan­úr­slita­kvöldið saman í gær­kvöldi, á­samt öllum sem komu að at­riðinu þeirra.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Katla að þau séu glöð að hafa komist á­fram og ætla þau að mæta með krafti í Söngva­keppnis­höllina í úr­slitunum.

„Við eins og allir sem að komust á­fram bara því­líkt glöð með þetta. Í skýjunum bara. Það er sér­stakt að komast svona á­fram, það er smá öðru­vísi en að komast á­fram á kvöldinu sjálfu,“ segir Katla sem var virki­lega hress með á­kvörðun fram­kvæmdar­stjórnarinnar að hleypa þeim í úr­slitin.

„Við erum búin að vera í ein­hverju rosa­legu limbói í viku, al­gjör til­finninga­rússí­bani. En það er mjög á­nægju­legt að svona hafi farið,“ segir Katla.

Að hennar sögn vissi hljóm­sveitin ekki af fyrir­á­ætlunum fram­kvæmdar­stjórnar Söngva­keppninnar fyrr en það var til­kynnt í sjón­varpinu.

„Í fullri hrein­skilni vissum við ekki neitt. Þessi á­kvörðun er í al­vöru tekin on the spot. Við vorum að horfa heima, mjög spennt. Ég held að við höfum fengið skila­boð mínútu áður en þetta var til­kynnt „Eru þið að horfa?". En það var engin með símann sinn uppi því við vorum a horfa á sýninguna,“ segir Katla.

En þegar Ragn­hildur Steinunn, einn af kynnum kvöldsins var að fara til­kynna hvaða at­riði færi með í úr­slitin datt netið út heima hjá syst­kinunum.

„Um leið og Ragn­hildur sleppir orðinu um hvaða auka­lag færi með í úr­slita­kvöldið, þá stoppaði út­sendingin hjá okkur og netið datt út. Loksins fór út­sendingin aftur á stað og þá fengum við skila­boð frá fólki að óska okkur til hamingju. Þannig við vorum bara „hvað er að gerast?". Þetta voru rosa­legar tvær mínútur,“ segir Katla.

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir