Lárus Welding fyrrverandi forstjóri Glitnis, segir í bókinni Uppgjör bankamanns frá atburðum fram að falli bankanna og efnahagshruni í október árið 2008.
Lárus segir að hann hafi aldrei upplifað neitt annað en að fólk sem starfaði í íslensku bönkunum að hafi verið að vinna af heilum hug.
„Ég er fullkomlega sammála því að margt hefði mátt gera betur. Við vorum ekki nógu varkár og fórum of geyst. En ég held samt að sú skýring sé ekki alls kostar rétt að í íslensku bankakerfi hafi slæmt fólk verið að verki.“
Að mati Lárusar er þetta eitt af þeim sjónarhornum sem hann vill draga fram. Allur þessi lærdómur en líka þessi mannlegi þáttur.
„Ég fór til að mynda sjálfur og sótti mér frekari menntun í kjölfarið á þessum atburðum. Til að reyna að skilja hvernig í ósköpunum þetta gerðist. Til að átta mig á þessu sjálfur.“
Í dag segist hann líta svo á að hann hafi verið ótrúlega lánsamur. Eftir standi að hann hafi verið umkringdur góðu fólki í gegnum allt ferlið.
„Þetta er auðvitað ótrúleg saga. Fyrir einhverja skrítna tilviljun er ég orðinn bankastjóri þarna rétt liðlega þrítugur. Maður fær allt að því kjánahroll yfir því í dag. Og af því að við erum að tala um lærdóm: þó að ég hafi fundið mig mjög vel í að vera bankamaður þá lærði ég það alla vega af þessu að mig langar ekki að verða bankastjóri. Ég þarf þá ekki að eltast við það meir.“
Hægt er að lesa meira hér.