Komin í ferðagírinn en gagngrýnin á gjafakort stjórnvalda

Íslendingar eru komnir í ferðagírinn og búa sig undir að ferðast innanlands. Ingunn Lára Kristjánsdóttir ræddi við Íslendinga í götuspjalli í fréttaskýringaþættinum 21 nú á dögunum.

Þá virtist einn vinsælasti áfangastaðurinn vera Vestfirðir.

„Mig langar ofboðslega að vera á Vestfirði í sumar og svo fer ég alveg örugglega eitthvað á Austfirði líka,“ sagði Bjartmar Þórðarson, leikstjóri og leikari, sem var meðal viðmælanda.

Ekki eru allir sammála um notagildi fimm þúsund króna gjafakorts frá stjórnvöldum til að nota til kaupa af íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum.

„Ég er ekkert ofboðslega hrifin af þessari hugmynd með þessa ávísun. Ég skil ekki alveg hverju hún eigi að skila.“ sagði Halldóra Mogensen þingmaður Pírata.

„Þetta er ekki það mikið í fyrsta lagi og ég hefði miklu frekar viljað sjá að fjárfest væri í fólki í landinu og passa upp á að verið sé að tryggja afkomu fólks. Fimm þúsund króna ávísun til að nota í ferðaþjónustuna er ekki að fara að gera mikið fyrir þá sem eiga minnst á milli handanna og langar til að ferðast líka.“

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á götuspjallið í heild sinni.

Fleiri fréttir