Kolbeinn segir að Facebook minni á sjónvarpsdagskránna: „Fátt skemmtilegra en að horfa á fullorðið fólk öskra á hvert annað“

Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli, segir í bakþönkum í Fréttablaðinu í gær að samskiptamiðillinn Facebook sé orðinn hundleiðinlegur. Hann segir að það sé bara gaman að fylgjast með fullorðnu fólki rífast og óska vinum til hamingju með afmælið.

„Árið 2007 opnaði ég reikning á Facebook. Það var strax mikið fjör. Þannig var maður sífellt að pota í fólk, spila leiki, læka og kommenta. En það langskemmtilegasta var að tengja aftur við fólk sem maður hafði þekkt og átt góð samskipti við í fortíð. Barnslegt sakleysi Facebook breyttist samt hratt með hækkandi aldri. Þar sem keypt efni fékk sífellt meira vægi,“ segir Kolbeinn.

Í dag minnir Facebook hann á sjónvarpsdagskránna sem var borin út í öll hús fyrir þrjátíu árum.

„Það litla sem var áhugavert þar var falið innan um endalausar auglýsingar. Facebook hefur brugðist við þessu með því að halda að okkur efni þar sem aðilar rífast svo að blóðið rennur. Enda fátt skemmtilegra en að horfa á fullorðið fólk öskra á hvert annað,“ segir Kolbeinn.

Í eina skiptið sem Kolbeini finnst gaman á Facebook er þegar hann á afmæli.

„Þar fær maður fullt af kveðjum frá fólki sem flest hafði ekki hugmynd um að maður ætti afmæli. Enda er það þannig að það fyrsta sem Facebook hvetur mig til að gera á hverjum degi er að senda afmælisbarni dagsins kveðju,“ segir Kolbeinn.

Hann mun þó að öllum líkindum deila þessum bakþönkum sínum á samfélagsmiðlinum.

„Hvað þessi skrif varðar þá mun ég deila þessum pistli á Facebook þar sem hann mun fá nokkur læk og sniðugur frændi minn kommentar eitthvað tvírætt,“ segir Kolbeinn að lokum.

Fleiri fréttir