Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson kveðst ekki kannast við að hafa áreitt eða beitt Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur og aðra konu ofbeldi á skemmtistaðnum B5 haustið 2017.
„Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta,“ segir í yfirlýsingu um málið frá Kolbeini.
„Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi,“ segir í yfirlýsingunni.
Kolbeinn kveðst hafa átt í erfiðleikum á undanförnum árum. Verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils hans sem knattspyrnumanns í mikilli hættu.
„Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti,“ segir hann um atvikið á B5. „Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustaði á þeirra upplifun.“
Með greiðslunni til Stígamóta segir Kolbeinn málinu hafa verið lokið af þeirra hálfu. „KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því,“ undirstrikar Kolbeinn.
„Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum,“ segir að endingu í yfirlýsingu Kolbeins Sigþórssonar