Kleini handtekinn af sérsveitinni - Fjörutíu mínútna lögregluaðgerð á Húsavík

„Ég er að fá gígantískt margar spurningar um hvort ég sé laus. Já ég er sko laus. Saklausum mönnum er oftast sleppt. Allavega á endanum,“ segir Kristján Einar Sigurbjörnsson um það að hann hafi verið handtekinn fyrr í kvöld.

DV greindi frá því nú í kvöld, að áhirfavaldurinn Kristján Einar, betur þekktur sem Kleini, hefði verið handtekinn af sérsveitinni á Húsavík í kvöld.

Miðillinn hefur eftir sjónarvottum að lögregluaðgerðin hafi tekið rúmlega fjörutíu mínútur og hafi hluta Mararbrautar verið lokað á meðan á aðgerðum stóð.

Ástæðan fyrir handtökunni ku vera að Kristján Einar sé grunaður um aðild að alvarlegri líkamsárás á Akureyri um áramótin.

DV hafði samband við Kristján sem staðfesti að hann hefði verið handtekinn en síðan verið sleppt stuttu síðar. Hann vill meina að hann sé alsaklaus.

Fleiri fréttir