Sífellt fleiri orðrómar skjóta nú upp kollinum um heilsufarsástand Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, og segjast fjölmiðlar á borð við Express hafa heimildir fyrir því að leiðtoginn hafi látist í gær.
Einnig hafa sögur borist af því að Kim Jong-un sé á dánarbeði sínu og sé haldið á lífi af sjúkratækjum. Þá á öll von að vera úti um að heilastarfsemi leiðtogans nái sér aftur á strik.
Uggandi yfir fjarverunni
Erfitt hefur reynst að staðfesta fregnirnar þar sem landamærum Norður-Kóreu hefur verið lokað síðan í janúar vegna COVID-19 faraldursins og enginn formleg tilkynning hefur borist frá yfirvöldum.
Ekkert hefur sést til Kim Jong-un opinberlega í tæpar tvær vikur og missti hann meðal annars af einum helsta hátíðardegi Norður Kóreu um miðjan mánuðinn. Fjarvera hans er sögð hafa vakið mikla athygli og eru þegnar hans uggandi yfir ástandinu.