Keyptu iPhone 12 á bland.is en fengu svo aldrei símann

Einstaklingar ræddu við lögregluna á Vesturlandi eftir að hafa keypt sér nýjasta iPhone símann af aðila á vefsíðunni bland.is en aldrei fengið símann í hendurnar.

Skessuhorn greinir frá þessu á fréttavef sínum.

Lögreglan segir þetta ekkert nýtt af nálinni. Fólk kaupi oft hluti á netinu og leggur pening inn á reikning hjá ókunnugum. Slíkt ber að forðast og lögreglan varar við slíkum viðskiptaháttum.

Seljandinn, sem sagðist ætla að selja fyrrnefndum einstaklingum iPhone 12 síma, er víst góðkunningi lögreglu og er eftirlýstur.

Fleiri fréttir