Katrín lendir iðulega í því að vera spurð hvar forsætisráðherra sé

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur vakið athygli fyrir skemmtilegt og einlægt viðtal í helgarblaði DV sem kom út í dag.

Í viðtalinu ræðir Katrín meðal annars um það að vera ung kona sem höfuð ríkisstjórnar. Tobba Marinós, ritstjóri DV, spyr hana hvort hún hafi upplifað að ekki sé tekið mark á henni á erlendum vettvangi.

Svarar þá forsætisráðherrann að karlar jafnt sem konur hafi oft ruglast og ekki áttað sig á því að hún væri forsætisráðherrann sjálfur.

„Ég lendi iðulega í því að vera spurð hvar forsætisráðherra sé. Ég hef lent í alls konar slíku og það eru þá jafnt konur og menn sem spyrja mig hvar ég sé og fara svo alveg í kjallarann þegar ég segi þeim að ég sé forsætisráðherrann,“ segir Katrín í samtali við Tobbu.

Indverskur spyrill skipaði Katrínu að standa upp

Minnist hún á furðulegt augnablik í viðtali við indverska sjónvarpið.

„Ég heilsa spyrlinum og hann skilur mig eitthvað illa. Svo spyr ég: „Á ég að setjast hérna?“ Og sest og hann stekkur upp: „Nei, nei, stattu upp, stattu upp. Forsætisráðherra á að sitja þarna.“ Í kjölfarið kom svo langur misskilningur eins og í gamanmynd og hann var í svo ægilegum mínus, aumingjans maðurinn.“

Fleiri fréttir