Helgi Seljan fjölmiðlamaður og Friðjón R. Friðjónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kom ráðgjafar, eiga í orðahnippingum á Twitter um hlutverk lögreglu í árásinni á þinghúsið í Washington D.C. í gær.
Fjölmargir sérfræðingar hafa lýst yfir furðu yfir hve óundirbúin lögreggæsluyfirvöld voru þegar mótmæling breyttust í múgæsing og hópur óeirðaseggja brutu sér leið inn í þinghúsið. Myndbönd hafa verið á dreifingu á netinu sem sýnir að þónokkrir lögreglumenn hafi hreinilega hleypt ódæðismönnunum að og inn í þinghúsið. Í einu myndbandi má sjá löggæslumann stilla sér upp fyrir myndatöku með manni sem braust inn í þinghúsið.
Helgi Seljan sagði hæpið að tala um innbrot þegar lögreglan hleypti þeim inn. „Kona var skotin, liklega af lögreglunni í árásinni á þinghúsið og er látin,“ svaraði Friðjón.
Kona var skotin, liklega af lögreglunni í árásinni á þinghúsið og er látin
— Friðjón Friðjónsson (@fridjon) January 6, 2021
Friðjón segir það rangt hjá Helga að halda því fram að allir hljóti að sjá að þetta gerðist ekki óvart. Að hans mati var ekkert samkrull með uppreisnarseggjunum.
Þú ert að gefa þér að ég sé að ýja að samsæri. Ég er að segja að löggan hafi hleypt þeim inn. Sem er óumdeilt. Það að hún hafi gert það hefur ekkert með að gera hvort það voru samantekin ráð eða einfaldlega það augljósa; hún gat ekki annað. Og, nei, það er ekki tilviljun.
— Helgi Seljan (@helgiseljan) January 7, 2021
Jesús hvað þú ert vanstilltur, greyið mitt. Ég var að benda þér á að @jonkaldal hefði einmitt furðað sig á því hve illa lögreglu gekk að stemma stigu við lýðnum. Þvert á þín orð. Þú mátt ekki kalla feikfréttir bara þótt þú hafir rangt fyrir þér.
— Friðjón Friðjónsson (@fridjon) January 7, 2021