Kallar eftir af­sökunar­beiðni frá lög­reglu:„Ó­á­sættan­leg sturlun“

Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefáns­son deildi ný­verið færslu á Face­book þar sem hann gagn­rýnir að­ferðir sem lög­reglan beitir þegar lýst er eftir ein­stak­lingum á sam­fé­lags­miðlum.

Fyrr í dag greindi Frétta­blaðið frá því að sex­tán ára ung­lingur var stöðvaður í strætó af sér­sveit ríkis­lög­reglu­stjóra vegna leitar að stroku­fanganum Gabríel Duoa­ne Doama en drengurinn er dökkur á hörund líkt og Gabríel.

„Það er ó­á­sættan­leg sturlun að vopnuð sér­sveit fari í að­gerðir og fjar­lægi 16 ára barn, einungis af því að það er með sömu klippingu og eftir­lýstur ein­stak­lingur,“ segir Logi og kallar eftir skýrum verk­lags­breytingum og af­sökunar­beiðni frá lög­reglunni og við­brögð frá æðstu ráða­mönnum þjóðarinnar.

Í tilkynningu sem lögreglan hefur sent frá sér vegna málsins kemur fram að drengurinn hafi ekki verið fjarlægður úr vagninum: „För vagnsins var stöðvuð en þegar sérsveitarmenn fóru inn í vagninn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.“

Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Fleiri fréttir