Kaffikanna

Að hella upp á kaffi á gamla mátann er skemmtileg athöfn segir keramikhönnuðurinn Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir en hún tók þátt í Hönnunarmars í Epal og kynnti postulíns kaffikönnuna “Uppáklædd” við ákaflega góðar undirtektir.

Eins og nafnið gefur til kynna er hún uppáklædd í lituðum tréperlum og böndum sem gerir hverja könnu einstaka. "Með henni er hægt að hella upp á kaffi á gamla mátann og bera síðan kaffið fram í henni” útskýrir Ingibjörg en kaffikannan er samsett úr fjórum hlutum, könnunni, trektinni, undirskálinni og lokinu. "Þegar kaffikannan er ekki í notkun er hlutum hennar raðað upp í eina heild og sómir hún sér þá vel sem eldhússtáss” segir Ingibjörg glöð í bragði. Tréperlurnar og böndin koma í ýmsum útfærslum en eru fyrst og fremst hugsaðar til að einangra þegar tekið er utan um heita könnuna.

Aðspurð um hugmyndina að kaffikönnunni segir hún frá því hvernig alla vega snúningar heilluðu hana svo sem snúningur tvinnakeflis eða snúningur leirrennibekksins . “Það snerist allt um snúning sem leiddi mig að trektinni og vatnsbununni þegar hellt er uppá kaffi”

Vonir eru á að kaffikönnurnar komi í verslanir innan tíðar en einnig er hægt er nálgast þær á vinnustofu Ingibjargar í Íshúsi Hafnarfjarðar en þar hefur hún komið sér upp vinnuaðstöðu ásamt ýmsum öðrum listamönnum og hönnuðum “Það er ýmislegt um að vera hjá okkur, opnir dagar og fleiri skemmtilegheit” segir hún að lokum.

Fleiri fréttir