Jón Viðar gagn­rýnir Ís­lensku óperuna: „Stofnun sem setur ekki meira en tvær full­gildar sýningar á ári“

Leik­hús­gagnrýnandinn Jón Viðar Jóns­son segist vera sam­mála Birnu Haf­steins­dóttur, for­manni fé­lags ís­lenskra lista­manna um að hið opin­bera geri út­tekt á hvernig samninga­málum sé háttað hjá Ís­lensku óperunni.

Mikið hefur verið rætt um mál­efni Óperunnar eftir að söng­konan Þóra Einars­dóttir vann mál sitt gegn Ís­lensku óperunni.

Í færslu á Face­book segir Jón að hann sé sam­mála Birnu, en spyr sig svo hvort það sé nauð­syn­legt að halda úti stofnun sem heldur svo fáar sýningar.

„Tek undir með Birnu Haf­stein. En það er ekki nóg að ræða samnings­mál Ís­lensku óperunnar. Svo þarf að ræða hvort virki­lega þurfi að halda hér úti heilli stofnun sem setur ekki meira en í lang­mesta lagi tvær full­gildar óperu­sýningar á ári.“

Fleiri fréttir