Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttarlögmaður, gerir grein fyrir hugmyndum sínum um dómstóla í hlaðvarps- þættinum Það sem skiptir máli. Þriðji þátturinn fór í loftið í gær og þar fjallaði hann um hugmyndir sínar um dómsvaldið á Íslandi.
„Unga fólkið hefur meira verið að nota þetta. Einhver stakk því að mér að það yrði sniðugt ef ég setti fram hugmyndir mínar um lögfræðina, dómstólana og hugsanlega misnotkun dómsvaldsins í svona þætti,“ segir Jón Steinar í viðtali við Fréttablaðið í dag.
Í þriðja þættinum víkur Jón Steinar að bók sinni frá 1987, Deilt á dómarana, og veltir því fyrir sér hvort hún hafi valdið einhverjum breytingum í réttarkerfinu. Þættirnir verða alls sex og segir Jón Steinar að í næstu þáttum muni hann taka fyrir einstök dæmi og ræða hvað sé hægt að gera til úrbóta.
Aðspurður um skoðun sína á hlaðvörpum sem miðli segist Jón Steinar heillaður.
„Ég verð að segja að mér finnst þetta alveg frábært, að hafa tækifæri til að geta tjáð skoðanir sínar svona sjálfur á alnetinu,“ segir hann.
„Þetta er tjáningarmáti sem stendur alveg undir sér sjálfur. Sá sem vill tala, talar, og sá sem vill hlusta, hlustar. Það þarf engan millilið, svo ég segi bara húrra!“