Jón Gnarr sendir Helgu Brögu hjartnæma kveðju

Grínistinn og fyrrum stjórnmálamaðurinn Jón Gnarr skrifar fallega færslu um leikkonuna Helgu Brögu Jónsdóttur á Twitter þar sem hann segist elska leikkonuna en líka persónuna.

Með færslunni birtir Jón mynd af Helgu í tökum fyrir Áramótaskaupið.

„ég elska þessa konu svo mikið. auðvitað leikkonuna en ekki síður týpuna. fékk taugaáfall í morgun og náði rétt að klína framan í sig en sleppti hárinu, skutlaði sér í blómablússu og vesti sem passar við allt yfir. alltaf hress og kát en samt alveg alltaf líka á barmi sturlunar,“ skrifar Jón við myndina.

Kveðjan hitti í mark þar sem Helga deildi færslunni og þakkaði fyrir fallega orðsendingu.

Fleiri fréttir