Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, greindist í gær með Covid-19. Hann segir frá því á Twitter-síðunni sinni að hann sé nú kominn í einangrun.
Hann segist ekki vera með hita en með hálsbólgu og að honum líði „soldið einsog ég hafi gleypt gamalt og blautt handklæði sem legið hafi á gólfi einhvern tíma.“
í gær greindist ég með kóvíd og er nú kominn í einangrun. ekki með hita en hálsbólgu og líður soldið einsog ég hafi gleypt gamalt og blautt handklæði sem legið hafi á gólfi einhvern tíma
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) August 13, 2021
Fjölmargir senda honum góðar kveðjur í póstinum en einhverjir velta því fyrir sér hvort að hann hafi smitast á Leifsstöð en hann var ekki sáttur við örtröðina sem hafði myndast á vellinum fyrr í vikunni þegar hann kom heim erlendis frá.
það má alls ekki þjóðhátíð en þetta er í lagi? engin smithætta hér pic.twitter.com/POVIt9PnHH
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) August 7, 2021