Jóhannes Loftsson segir að félagsprófkjöri hjá Miðflokknum í Reykjavík hafi verið stolið af flokksstjórn flokksins. Jóhannes, sem áður var í flokknum Ábyrg framtíð, hafði boðið sig fram í oddvitasætið en núverandi oddviti tilkynnti fyrr í mánuðinum að hún ætlaði ekki að sækjast eftir því aftur.
Tilkynnt var í gær á vef flokksins að félagaprófkjöri væri aflýst og að frambjóðendur ætluðu að vinna saman. Efstur þar á lista er Ómar Már Jónsson, Jósteinn Þorgrímsson er í því öðru og svo Sólveig Daníelsdóttir í því þriðja. Fram kemur á vefnum að þau hafi ein sóst eftir þessum sætum og því ekki þörf á prófkjöri.
Jóhannes segir hins vega á Facebook-síðu sinni að það hafi ekki verið mótframbjóðendur því að það hafi eitthvað „skrítið“ gerst eftir að framboðsfrestur rann út á miðvikudag.
„ Nú veit ég lítið hvað gerðist bak við tjöldin, enda ekki sérlega vanur svona innanflokkspólitík og lítt gefinn fyrir baktjaldamakk. En atburðarásin sem hófst um kvöldið eftir að framboðsfrestur rann út var ansi sérstök,“ segir Jóhannes í færslunni.
Hann segir að hann hafi fengið tölvupóst frá miðstjórn eftir að frestur rann út þar sem hann var beðinn um upplýsingar til að sanna að hann væri ekki lengur tengdur Ábyrgri framtíð auk þess sem hann fékk að vita að hann væri ekki enn orðinn meðlimur flokksins, þrátt fyrir að hann væri að sækja eftir oddvitasæti innan hans.
„Ég get því ekki með nokkru móti séð annað en að þessi gjörningur stjórnar Miðflokksins sé í senn ólögmætur og gerður með ásetningi til að komast hjá því að halda félagaprófkjör um oddvita,“ segir Jóhannes í færslu sinni og að bæði sé um að ræða aðför að lýðræðinu og félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.
Hann segist ekki einn um þessa skoðun því tveir aðrir frambjóðendur hættu við framboð sitt eftir að hafa heyrt af því hvernig komið var fram við hann. Í athugasemdum við færsluna segir Anna Björg Hjartardóttir að hún sé ein þeirra sem að hafi dregið sitt framboð til baka en hún hafði sóst eftir öðru sætinu og segir að það sama gildi um manneskjuna sem sóttist eftir því þriðja.
„Trúi varla ennþá að þetta hafi gerst og miðflokksmenn eru almennt líka í áfalli. Er sjálf formaður Miðflokksins í Reykjavík suður og fannst Jóhannes þvílíkur fengur fyrir Miðflokkinn,“ segir Anna Björg.