Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, og meðlimur allsherjar- og menntamálanefndar, segir að þrátt fyrir að nefndin hafi ákveðið í gær að breyta engu um þá sem þiggja heiðurslaun þá hafi nefndin verið sammála um að nauðsynlegt sé að endurskoða lög um heiðurslaun og að það verði með fyrstu verkefnum nefndarinnar
„Við lifum í öðrum heimi en var þegar lög um heiðurslaun listamanna voru sett. Við viljum kalla fagfélög og aðra hagsmunaaðila listafólks að borðinu,“ segir Jódís í færslu sem hún setti um málið á Facebook-síðu sína í gærkvöldi.
Hún segir að það halli á konur á listanum þrátt fyrir ákvæði um að það eigi ekki að gera í lögum.
„Á tímum Metoo-byltinga er mikilvægt að óttast ekki að taka samtalið og horfa til fleiri þátta en afreka á listasviðinu þegar þeim forréttindum, sem felast í heiðri og greiðslum opinbers fjár, er úthlutað,“ segir Jódís.
Hún segir að heimild sé í fjárlögum fyrir alls 25 listamönnum á heiðurslaun og að það sé ekki útilokað að bætt verði við listann á nýju ári þegar búið verður að endurskoða lögin.
Heimild er í fjárlögum fyrir 25 listamönnum á heiðurslaun og því ekki útilokað að bætt verði á listann á nýju ári þegar endurskoðun laganna hefur átt sér stað."