Ásdís Ásgeirsdóttir, blaðamaður og ljósmyndari, játar sig sigraða og miðaldra í pistli í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar segist hún lengi hafa barist á móti þessum stimpli en að hún játi sig nú sigraða og ætli frekar að reyna að fagna þessu lífsskeiði.
„Ég hef lengi barist á móti því að vera miðaldra en held ég verði að játa mig sigraða og reyna frekar að fagna þessu lífsskeiði. Við miðaldra fólkið erum kannski ekki alltaf með nýjustu tæknina á okkar valdi, vitum ekki hver er heitasti rapparinn en við vitum okkar viti. Ef þú ert í vafa um hvort þú fallir í flokkinn, lestu áfram,“ segir Ásdís sem segir frá nokkrum atriðum sem fólk geti notað til að reikna út hvort það falli í sama flokk og hún.
Atriðin eru fjölmörg en þar má, meðal annars, nefna, ekkert sjónvarp á fimmtudögum, Dallas og Húsið á sléttunni, Roger Moore sem Bond og að vakna klukkan hálf sjö um helgar.
„Á föstudögum geturðu ekki beðið eftir að koma heim og horfa á sjónvarpið undir sæng. Þú vaknar hálfsjö um helgar þótt þú vildir sofa út. Þú sofnar yfir bíómyndum. Líka stundum í bíó. Roger Moore er þinn Bond. Eitt helsta tilhlökkunarefni lífsins er kaffibollinn að morgni dags. Þú skilur ekkert hvernig Twitter virkar,“ segir Ásdís í pistlinum og að unglingarnir hennar rúlli reglulega augunum í návist hennar.
Pistilinn er hægt að lesa hér.