Ármann Höskuldsson, jarðskjálftafræðingur segir staðsetningu nýs eldgoss í Meradölum virkilega góða. Gosið verði líklega svipað og hið gamla. Fréttablaðið hefur fjallað um eldgosið á Meradölum.
„Þessi upptök þýða það sama og í fyrra. Það mun gjósa í rólegheitunum þarna, mögulega einhverja mánuði eða skemur,“ segir Ármann í samtali við Fréttablaðið. Eins og alþjóð veit hófst gos fyrir skemmstu.
Ármann segir ekkert að óttast. „Þetta er í Meradölum, það þarf að byrja á að fylla dalinn áður en skapast hætta af hrauni.“
Almannavarnir funda nú vegna málsins og þá eru vísindamenn á leið á svæðið að kanna það. Veðurstofan segir gas koma upp frá gosinu.
Í tilkynningu frá almannavörnum segir að vísindafólk sé á leiðinni á svæðið að meta gosið. Fólk er beðið um að fara með gát á svæðinu.
„Nú eru bara næstu skref að fara skoða staðsetningu og við erum í mikilli samvinnu við Veðurstofu. Væntanlega fer núna þyrla á loft til þess að taka þetta út.“
fréttatilkynningu Veðurstofunni segir að gosið sé í vestanverðum Meradölum um 1,5 km norður af Stóra-Hrút og að jarðeldurinn virðist koma upp um norður austur suðvestur sprungu á þeim stað.
Hægt er að lesa allt um eldgosið í Meradölum hér.