„Já, stöndum saman, gott fólk“

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, þakkar þjóðinni fyrir stillingu og einhug á tímum kórónaveirunnar í Facebook færslu sem hann birti fyrir helgi. Þá þakkar hann heilbrigðisstarfsfólki sérstaklega í kveðju sinni á Facebook.

„Þetta eru erfiðir dagar, kæru landar. Þá reynir á fólk. Ég þakka framvarðasveitinni í vörn okkar gegn veirunni þeirra góðu störf. Alma landlæknir, Þórólfur sóttvarnalæknir og Víðir yfirlögregluþjónn svara fumlaus öllum spurningum sem brenna á fólki, kynna aðgerðir hverju sinni og á hvaða rökum þær eru reistar.

Ég þakka þingheimi fyrir einingarvilja, ríkisstjórn fyrir hennar forystu. En ég þakka sérstaklega starfsliði heilbrigðisþjónustunnar. Á þeim mæðir mikið núna og ugglaust verður álagið meira á næstunni. Í dag flutti ég öllu þessu fólki góðar kveðjur og óskaði þeim velfarnaðar. Sömu ósk færi ég þeim sem sýkst hafa af veirunni og einnig þeim sem sitja í sóttkví af hennar völdum,“ skrifar Guðni.

Hann vitnar einnig í Hávamál:

„Loks færi ég íslenskri þjóð þakkir. Við höfum sýnt í verki stillingu og einhug. Höldum því áfram, ekki síst ef svo fer að brýn viðbrögð gegn vágestinum muni hafa enn meiri áhrif en áður á daglegt líf okkar,“ segir Guðni.

Í Hávamálum, okkar ævaforna menningararfi, má finna vísdómsorð um mikilvægi rósemi og raunsæis, hygginda og hugrekkis. Þar segir meðal annars:

Ósvinnur maður

vakir um allar nætur

og hyggur að hvívetna;

þá er móður,

er að morgni kemur,

allt er víl sem var.

Í Hávamálum segir þetta jafnframt um vinskap og traust: „Vin sínum skal maður vinur vera, þeim og þess vin.“ Á ensku eru þessi orð svohljóðandi: „One should be loyal through life to friends.“ Já, stöndum saman, gott fólk.“

Fleiri fréttir