Ís­lensk­ir stuðn­ings­menn Liv­er­po­ol deil­a ó­hugn­a­leg­u mynd­band­i frá Par­ís

Mynd­band sem sýnir stuðnings­menn Liver­pool í kramda upp við hlið Stade de France leik­vangsins í París hefur vakið mikla at­hygli og reiði fót­bolta­á­huga­manna um allan heim.

Síðast­liðinn laugar­dag fór úr­slita­leikur Meistara­deildar Evrópu fram í París, en fresta þurfti leiknum um rúman hálf­­­tíma sökum þess að erfið­­lega gekk að hleypa stuðnings­­mönnunum inn á leik­vanginn.

Ó­­eirða­lög­regla á svæðinu bætti pipar­úða á mann­fjöldann og margir miða­lausir ein­staklingar reyndu að þröngva sér leið inn á leik­vanginn án þess að hafa miða.

Magnús Þór Jónsson skólastjóri og stuðningsmaður Liverpool deildi myndbandinu á Twitter og skrifaði:

„Svona í ljósi alls konar ómerkilegra tilrauna til að búa til rangan sannleika þá er hér dæmi um myndband frá París. Guði sé lof fyrir nútímatækni sem er sem betur fer sð leiðrétta lygar Frakka. Þeir eiga aldrei að fá CL úrslit aftur. Aldrei.“

Hér fyrir neðan má sjá ó­hugan­legt mynd­band af stuðnings­mönnum Liver­pool fasta fyrir utan leik­vanginn.

Fleiri fréttir