Ís­lendingar á leið til Tenerife rífast um hallandi sæti: „Hvernig er þetta henni að kenna?“

Gestur Traustason hellti reiðiskálum sínum yfir farðþega um borð í flugvél á leið til Tenerife, með innleggi á hópnum Tenerfie tips.

„Hæ Halla! Reyndar heitir þú sennilega ekki Halla, en þú hallaðir sætisbakinu eins langt og það komst nánast í upphafi flugs og hafðir það þannig næstu fimm tímana.“ Svona hefst færslan, og heldur hann áfram að pirra sig á þessu framferði konunar sem hafði gerst sek um að halla sætinu sínu aftur.

„Þessa tíma vorum við helst of náin, enda svafstu nánast í fanginu mínu allan tíman. Þetta harða sem var að rekast í bakið á þér? Nei - ekki það sem þú heldur, heldur bara aum hné að reyna að finna sér pláss.“

Hann segir að lokum að hann hafi ekkert getað notað borðið eða skjáinn, en að hans sögn hafði nægan tíma til að skoða hársvörðin hennar „Ættir að láta líta á þetta exem…,“ segir hann.

Færslan vakti mikla athygli og höfðu ófáir meðlimir skoðanir á þessu hitamáli.

Anna Gunnarsdóttir segir: „Eg halla ekki sætum i flugvelum, svo omurlegt fyrir ta sem eru fyrir aftan!

Elísabet Ingadóttir er ósammála honum Gest „finnst hart að kalla fólk forréttindapésa við að nýta sætin og skipulagið eins og það er sett upp í vélunum. Líka þá ekkert mál að hnippa í viðkomandi að mínu mati og biðja um að lyfta aðeins sætinu ef þess þarf.“

Jenný Heiða telur Gest era sýna kvennfyrirlitningu: „Konur mega líka taka pláss, afhverju á að skerða hennar pláss og rétt á að halla sætinu bara af því þú hugsaðir ekki út í að panta sæti með meira fótaplássi ?“

Hátt í hundrað manns hafa sett athugasemd við færsluna og eru skoðanir fólks skiptar.

Hvað finnst þér kæri lesandi, er í lagi að halla sætinu sínu í flugi eða ekki?

Fleiri fréttir