Ís­lands­deild Tran­s­paren­cy International skjóta föstum skotum á Bjarna Ben

„Sala fjármálaráðherra á hlut ríkisins í Íslandsbanka er skólabókardæmi um spillingu,“ segir í yfirlýsingu frá Transparency International á Íslandi varðandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Þá segir í yfirlýsingunni að ekki væri um fagleg vinnubrögð að ræða „Flest bendir nú til þess að hvorki salan sem fram fór í síðasta mánuði né hið almenna útboð í maí á síðasta ári standast réttmætar kröfur um fagleg vinnubrögð, hámörkun verðs eða störf í lýðræðislegu umboði. Salan er enn síður í samræmi við yfirlýst markmið og pólitísk loforð,“ segir í yfirlýsingunni.

„Íslandsdeild Transparency International vill enn sem fyrr undirstrika að stjórnvöld verði að stuðla að gagnsæi en ekki leggja stein í götu þess. Ef aðgerðir og ákvarðanir kjörinna fulltrúa eru sveipaðir huliðshjúpi verða þær að gróðrarstíu hlutdrægni, brotum á mannréttindum og mögulegum lögbrotum. Lögbrot kjörinna fulltrúa, ekki síst ráðherra, skaða mikilvæga þjóðarhagsmuni og eru ógn við heilbrigt lýðræði,“ segir félagið.

Fleiri fréttir