Björn Leví lagði fram tillögu á þingi í gær um að fjarlægja merki Danakonungs af Alþingishúsinu og lagði til að forseti Alþingis myndi fá þetta verkefni. Einhverjir hafa bent Birni á í athugasemdum að húsið sé friðað og að það myndi koma í veg fyrir að merkið verði fjarlægt.
Illugi Jökulsson blandaði sér svo í umræðuna í gærkvöldi og sagði það „löngu tímabært að taka þessa kórónu af Alþingishúsinu“ og sagði það hreinlega asnalegt að hafa tákn erlends þjóðhöfðingja á þinghúsinu.
„Getiði séð fyrir ykkur að Bandaríkjaþing væri með kórónu Georgs III á þinghúsinu sínu, eða breska þingið með skjaldarmerki Knúts ríka í öndvegi?“ spyr hann að lokum í færslu sem hann setti á Facebook um málið.