Illugi í heiðurssæti en ekki hanna birna

Framboðslistar Sjálfstæðisflokks í Reykjavík hafa verið birtir.

Fjögur efstu sætin á hvorum lista eru skipuð í samræmi við úrslit prófkjörsins þar sem 7 lögfræðingar eða laganemar fylltu 8 efstu sætin ásamt Guðlaugi Þór (Skýrslu-Gulla).

Ekkert ber svo til tíðinda varðandi uppstillingu listans fyrr en í lokin þar sem Illugi Gunnarsson \"skreytir\" heiðurssæti annars listans.

Athygli vekur að Hanna Birna Kristjánsdóttir á ekki sæti á framboðslistunum.

Af þessum tveimur brotthröktu fyrrum forystumönnum flokksins þykir uppstillingarnefndinni greinilega meiri fengur að Illuga en Hönnu Birnu.

Þarf að undra þó konur yfirgefi Sjálfstæðisflokkinn?