Illugi Jökulsson var allt annað en sáttur með færslu Glúms Baldvinssonar um Samherja og RÚV á þriðjudag.
„Nú verð ég seint sakaður um vináttu og hollustu í garð Samherja. Og skil reyndar ekki af hverju ekkert er enn að frétta af rannsókn á meintum glæpum þeirra í Afríku og víðar. En ég get ekki tekið undir væl blaðamanna þess efnis að lögreglan megi ekki yfirheyra þá vegna meints glæps gagnvart skipstjóra fyrirtækisins,“ skrifaði Glúmur á Facebook.
„RÚV virðist gera upp á milli og taka afstöðu í því máli. Kallar til dæmis annan aðila málsins í viðtal í kvöld en ekki hinn. Má ég minna RÚV á að miðillinn á að vera fréttamiðill en ekki áróðursmiðill. Allra landsmanna. Og hlutleysi er kjarninn í fréttamennsku. Við eigum kröfu á hendur alvöru fréttamiðli að hann greini frá öllum hliðum máls. Þeim þar í Efsta virðist fyrirmunað að fatta þetta. Og þar með halda þeir sem þar ráða áfram að grafa sér gröf. Á þinn kostnað,“ bætir Glúmur við.
Illugi Jökulsson svarar Glúmi í athugasemdum og spyr hann hvað gangi á eiginlega.
„Hvaða rugl er þetta? Viðtalið snerist um skoðanir blaðamannsins á tilteknu máli og þá ákvörðun að fara með það til MDE. Hefðirðu grætt voða mikið á að hafa Brynjar Níelsson í settinu?“ skrifar Illugi.
Glúmur svarar honum á þá leið að hann hefði boðið skipstjóranum Páli Steingrímssyni í viðtal og svarar Illugi þá með: „Drottinn minn dýri, Glúmur!“