Í­búar í Mið­borg vilja banna rútur í mið­bænum í kjöl­far bana­slyss

Með­limir í hópnum Í­búar í Mið­borg vilja leggja bann á að rútur keyri um mið­bæinn. Miklar um­ræður hafa myndast um bíla­um­ferð í mið­bæ Reykja­víkur í kjöl­far bana­slyss sem átti sér stað á Baróns­stíg í gær­kvöldi.

„Er ekki kominn tími til að túr­istar­útur hætti að keyra Baronstíginn (og annars­staðar í mið­bænum)? Þarna er Austur­bæja­skóli og Sund­höllinn með tölu­verðri um­ferð barna,“ segir Ey­steinn Már og heldur á­fram:

„Ég hef aldrei skilið af­hverju það þarf að sækja túr­ista upp að dyrum í stað þess að þeir fari niður á BSI eða taki strætó eins og aðrir. Mér dettur t.d. í hug mjög skrítið á­stand á hverjum degi við Hall­gríms­kirkju á móti Grænu­borg þar sem röð af rútum troða sér á bíla­stæðið á sama tíma að taka upp túr­ista,“ segir Ey­steinn.

Addi Ljós segir: „Sam­mála … bý á horni hverfis­götu og baróns­stíg og nánast dag­lega er ég ad horfa rútur Gera um­ferdar­mis­tök á thessu horni. Stór­hættu­legt!“

Þá telja nokkrir með­limir hópsins að það þurfi að hafa meira eftir­lit með öku­mönnum raf­hlaupa­hjóla. „Er ekki kominn tími til þess að fólk á leigu hlaupa hjólunum fari var­lega, verð oft var við að þau þjóti yfir götur og gatna­mót án þess að skoða hvort sé um­ferð,“ segir einn.

Fleiri fréttir