Íbúar í miðbæ funda vegna hávaðamengunar næturlífsins: „Íslendingar geta ekki skemmt sér nema æpa hver á annan“

Í­búar í mið­borg Reykja­víkur hafa margir fengið sig full­sadda af há­vaðanum sem fylgir ís­lenska nætur­lífinu. Í­búa­sam­tök Mið­borgar Reykja­víkur standa fyrir mál­þinginu „Hvernig gengur sam­býlið við nætur­lífið?“ á fimmtu­daginn, en þar munu meðal annars í­búar, sér­fræðingur í svefni og borgar­full­trúi ræða stöðu mála. Fréttablaðið sagði frá málinu í dag.

Benóný Ægis­son er einn þeirra íbúa sem ætla segja frá reynslu sinni af hávaðanum í mið­bænum, en hann segir skemmtana­lífið hafa breyst undan­farin ár.

„Nætur­lífið hefur þróast mikið á síðustu ára­tugum, með minni stöðum í staðin fyrir eins og áður þegar þetta voru mest stórir staðir og fáir og oft í iðnaðar­hverfum, hvergi ná­lægt í­búðar­byggð. Það eru lög og reglur sem fjalla um rekstur þessara skemmti­staða, sem er illa fram­fylgt, vægt til orða tekið,“ segir Benóný.

„Ís­lendingar geta ekki skemmt sér nema æpa hver á annan, þau tala ekki saman eins og aðra þjóðir. Þannig það getur verið mikill há­vaði af fólkinu úti,“ segir Benóný og bætir við að skemmti­staðirnir séu oft hýstir í hús­næði sem getur ekki haldið utan um há­vaðann.

Há­vaðinn sem kemur frá nætur­lífinu truflað ekki bara íbúa, en lengi hafa kvartanir borist frá hótel- og gisti­húsa­eig­endum, þar sem ferða­menn eiga erfitt með svefn vegna há­vaðans.

„Verst af öllu eru bassa­drunurnar sem berast í gegnum allt. Þetta keyrir á sumum stöðum fram á rauðan morgun og oft í húsum sem eru ekki nógu góð fyrir svona staði. Þetta eru gömul timbur­hús sem leka öllu hljóði. Þó svo að það eigi, sam­kvæmt eigin­lega öllum reglu­gerðum, þá máttu ekki valda ná­grönnum þínum ó­næði með há­vaða. Það er ekkert flóknara en það,“ segir Benóný.

Benóný leggur til að skemmti­staðir færi sig í út­hverfin, þar sem há­vaðinn myndi ekki trufla neinn að hans sögn.

„Það sem ég vill sjá gerast er að þeim reglum sem eru í gildi um þessa starf­semi sé fram­fylgt. og svo væri kannski sniðugra, ef fólk vill ekki ganga að í­búðar­byggðinni dauðri í mið­bænum vegna há­vaða, að staðirnir myndu flytja í út­hverfin eða út á Granda þar sem þau trufla engan,“ segir Benóný.

„Við erum ekkert á móti nætur­lífinu, við viljum bara geta sofið á nóttunni.“

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.

Fleiri fréttir