Elliði Vignisson sveitarstjóri í Ölfusi segir á Facebook-síðu sinni í dag að ætlun hans að birta glæru frá MS hafi ekki verið til þess að varpa athygli á skólann eða jafnvel kennarann, heldur á pólitískan áróður og innrætingu sem hann hefur áhyggjur af í kennslustofu og skólakerfinu.
Hann birti glæruna fyrr í vikunni og talaði þar um að vandamálið einskorðaðist ekki við Verslunarskólann sem var til umræðu í vikunni eftir að kennari þar setti Sigmund Davíð XX formann Miðflokksins í sama flott og erlenda þjóðernissinna og einræðisherra.
Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor Menntaskólans við Sund, svaraði Elliða í viðtali á mbl.is í gær þar sem hún sagðist ekki kannast við glæruna og að hún væri ekki úr þeirra kennslukerfi. Því hefur Elliði nú aftur svarað.
„Þar sem þú segist ekki kannast við að þessi glæra sé úr þínum skóla er mér ljúft að upplýsa þig um að nemandinn sem tók myndina af glærunni segist hafa gert það í áfanganum FÉLA2SF05VE, sem jafnan var kallaður "stjórnmálafræði". Mér þykir ekki rétt að nefna nafn kennarans nema það þurfi til að auðvelda þér að skoða málið en fyrir samhengi er allt í lagi að taka fram að hún skipaði 4. sæti á lista Alþýðufylkingar í Reykjavík norður fyrir skömmu. Þessar upplýsingar gætu auðveldað þér að skoða málið nánar,“ segir Elliði og að hann furði sig á þeim rökum hennar og skólameistara Verslunarskólans, að glærurnar séu teknar úr samhengi.
„Ég hreinlega átta mig ekki á í hvaða samhengi þessar glærur og þessi framsetning á kennsluefni gæti átt rétt á sér í kennslustofum í skólum ykkar. Áhugavert væri að fá fram svör ykkar við þessu. Sem sagt, í hvaða samhengi teldir þú þessa glæru réttlætanlega?“