Hvönn frá Hrísey nýtt í rannsókn á COVID-19 í Bandaríkjunum

SagaNatura vinnur nú í samstarfi við bandarískan háskóla að nýta íslenska hvönn í rannsókn á þremur veirum, þar á meðal um áhrif hennar á kórónaveiruna sem veldur COVID-19. Lilja Kjalarsdóttir, framkvæmdarstjóri SagaNatura, ræddi um veiruvirkni íslenskrar hvannar og möguleika á að nýta hana í baráttunni gegn veirusjúkdómum í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Sýni var sent til Bandaríkjanna frá Íslandi til rannsókna í þessari viku og má búast við niðurstöðum innan tveggja vikna að sögn Lilju.

Lilja segir að margra ára rannsóknir sýni fram á að ætihvönn geti drepið veirur. Niðurstöður á RS- veiru-prófun hér á landi hafi sýnt fram á sterka veiruvirkni gegn þeirri veiru. Það fari þó eftir magninu á efninu.

„Þessar rannsóknir eru gerðar í tilraunaglösum með veiru sem sýkir frumur í glasinu. Svo er verið að mæla hversu margar frumur deyja út af veirunni og hversu mikið af efni þú þarft til að hindra það að veiran sé að drepa frumurnar. Við erum ekki að gera tilraunir í fólki. Þetta er alltaf fyrsta skrefið en þú ferð ekki áfram í klíníska rannsókn án þess að hafa þessi gögn,“ segir Lilja í Bítinu á Bylgjunni.

Hvönnin sem nýtt er í rannsókninni er frá Hrísey og er hún tínd á 4-6 vikna tímabili yfir sumar. Hvönnin er þurrkuð innan nokkurra klukkutíma frá því að hún er tínd. Bæði eru fræ og lauf notuð.

Hvönnin vex villt víða um allt land.

Fleiri fréttir