Hvetur kjörna full­trúa til þess að fella til­lögu Sjálf­stæðis­manna: „Enn og aftur lýst yfir stríði við máva“

„Reykja­víkur­borg er hafnar­borg. Mávar og aðrir sjó­fuglar eru náttúru­legir í­búar í hafnar­borgum en hafa hins vegar í seinni tíð verið að færa sig í borgir sem eru fjarri sjó.“

Þetta segir Líf Magneu­dóttir, borgar­full­trúi Vinstri grænna í stöðu­upp­færslu á Face­book. Fréttablaðið greindi frá.

Hún gagn­rýnir fyrir­ætlanir Sjálf­stæðis­manna í Reykja­vík fyrir að vilja fækka mávum með því að drepa þá og ungana þeirra.

„Hvað gefur þeim skil­greiningar­valdið á því hvort mávar séu meiri pest en aðrir fuglar og önnur dýr? Hafa þeir ekki kynnt sér stefnu Reykja­víkur­borgar um líf­fræði­lega fjöl­breytni? Og eins má spyrja sig hvort Sjálf­stæðis­flokkurinn hafi haft sam­ráð við Náttúru­fræði­stofnun Ís­lands eða Gunnar Þór Hall­gríms­son hjá HÍ sem hefur rann­sakað síla­m­áva manna mest en það er sú tegund sem er hvað mest í þétt­býli,“ segir Líf.

Hún segir að margar tegundir máva séu í út­rýmingar­hættu og að það sé sorg­legt að sjá mann­fólk flýta þeirri þróun.

„Hvít­mávar eru í hættu, dverg­mávar eru í nokkurri hættu og í yfir­vofandi hættu eru silfur­mávar. Eins fer nokkrum stofnum máva hnignandi því þeir eru drepnir vegna meints tjóns eins og svart­bakur og hvít­mávur. Stormmávar og dverg­mávar eru friðaðar tegundir og hettu­mávar og hvít­mávar eru friðaðir á varp­tíma. Hins vegar er síla­m­ávar, silfur­mávar og svart­bakur ekki friðaðir en svart­baki hefur fækkað mest. Rann­sókna og jafn­vel endur­mats er þörf,“ segir Líf.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.

Fleiri fréttir