Hulda sakar Orku­ náttúrunnar um ó­heiðar­leika: „Í sjálfu sér al­var­legt mál“

Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum mótmælir því harðlega að fyrirhugaðar framkvæmdir ON í og við inntakslón Andakílsárvirkjunar séu nauðsynlegar út frá rekstrarhagkvæmni orkuversins og sakar ON um að fara með rangt mál.

„Það lítur afskaplega fallega út að vísa til þess að framkvæmdir auki öryggi og séu til þess að uppfylla nútímakröfur,“ segir Huldaí samtali við Fréttablaðiðog  vísar þar í ummæli samskiptastjóra Orku náttúrunnar (ON) í Fréttablaðinu 18. ágúst.

„Ég mót­mæli því ekki að fyrir­hugaðar fram­kvæmdir ON í og við inn­tak­slón Anda­kíls­ár­virkjunar kunni að vera nauð­syn­legar út frá rekstrar­hag­kvæmni orku­versins,“ segir Hulda. „En það er skortur á heimildum til fram­kvæmdanna og ó­skýrt heildar­um­fang þeirra sem ég bendi á að Skipu­lags­stofnun virðist hafa van­metið.“

Hulda segir að þar sem ekkert virkjunar­leyfi sé til fyrir Anda­kíls­ár­virkjun liggi ekki fyrir skýr skil­yrði sem lúti ó­fjár­hags­legum þáttum á borð við um­hverfis­vernd, land­nýtingu og tækni­legum við­miðum sem tekið sé á í virkjunar­leyfum. Því þurfi fram­kvæmdirnar að fara í mat á um­hverfis­á­hrifum.

Skipu­lags­stofnun segir Hulda taka gott og gilt er ON full­yrði að ekki sé gert ráð fyrir að vatns­hæð í Skorra­dals­vatni fari út fyrir þau mörk sem miðað sé við í rekstrinum eða mörk í „úr­skurði“ Orku­stofnunar um miðlunar­leyfi.

„Orku­stofnun hefur aldrei „úr­skurðað“ um miðlunar­leyfi virkjunarinnar og þau „mörk“ sem ON notar hafa aldrei verið stað­fest með virkjunar­leyfi og um öll „mörk“ ríkir engin sátt meðal heima­manna,“ segir Hulda. Skipu­lags­stofnun dragi þá skökku á­lyktun að „breytingar á vatns­borði Skorra­dals­vatns og á rennsli Anda­kíls­ár verði innan heimilda ON til að starf­rækja virkjunina“.

Að sögn Huldu hefur ON ekki skýrar heimildir til breytinga á vatns­borði Skorra­dals­vatns og Anda­kíls­á ofan lóns né til breytinga á stíflum.

„Því er allt tal um bætt öryggi, lag­færingar og úr­bætur til þess fallið að draga at­hyglina frá því að virkjunar­leyfið er ekki til og að aldrei hefur farið fram mat á um­hverfis­á­hrifum Anda­kíls­ár­virkjunar sem þó er stór­­notandi náttúrunnar í Skorra­dal.“

Hulda krefst þess í kæru til úr­skurðar­nefndar um­hverfis- og auð­linda­mála að á­kvörðun Skipu­lags­stofnunar um að fram­kvæmdirnar þurfi ekki í um­hverfis­mat verði ó­gilduð.

„Á­kvörðun stofnunarinnar hvílir því miður á röngum upp­lýsingum fram­kvæmda­aðilans. Það er í sjálfu sér al­var­legt mál,“ segir hún.

Haft var eftir sam­skipta­stjóra ON í Frétta­blaðinu 18. ágúst, að rekstur Anda­kíls­ár­virkjunar sé í sam­ræmi við starfs­leyfi Heil­brigðis­eftir­lits Vestur­lands frá 2012.

„Full­trúar ON hafa áður reynt að vísa í tíma­bundið starfs­leyfi sem ein­hvers konar í­gildi virkjunar­leyfis en það er rangt, bein­línis ó­heiðar­legt og í hróp­legri mót­sögn við siða­reglur OR og dóttur­fé­laga,“ full­yrðir Hulda. Heil­brigðis­eftir­litið segi um starfs­leyfið að það feli að­eins í sér að reksturinn upp­fylli skil­yrði gagn­vart lögum um hollustu­hætti og mengunar­varnir en sé ekki leyfi til að reka virkjun og fram­leiða raf­magn.

Hulda segir að á meðan af­mörkun heimilda liggi ekki fyrir í virkjunar­leyfi verði tor­tryggni í garð allra fram­kvæmda rekstrar­aðila Anda­kíls­ár­virkjunar. „Sama hversu á­ferðar­fal­leg kynning þeirra er.“

Fleiri fréttir