Mikil viðbrögð hafa orðið við frétt Fréttablaðsins um endurflutt efni á Rás 1. Margir fjölmiðlamenn hafa blandað sér í umræðuna. Viðbrögð Þrastar Helgasonar dagskrárstjóra Rásar 1 hafa ekki síst vakið hörð viðbrögð.
Þröstur taldi ekkert fréttnæmt við að allir dagskrárliðir Rásar 1 síðastliðinn laugardag frá hádegi og fram að miðnætti hefðu verið endurtekið efni utan fréttir, dánartilkynningar og veðurfregnir. Hann bannaði Fréttablaðinu að hafa eftir sér tilsvör þegar blaðið spurði um lagalegar skyldur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrum fréttamaður á Rúv, er meðal þeirra sem hafa blandað sér opinberlega í umræðuna. Hún segir í Facebook-færslu sinni þar sem hún deilir frétt Fréttablaðsins að síendurtekið efni í dagskrá Ríkisútvarpsins segi allt sem segja þarf „um þann sjoppubrag sem kominn er á þá stofnun.“
„Einu sinni var Ríkisútvarpið metnaðarfull, framsækin mennta og menningarstofnun. Leikhús þjóðarinnar, háskóli hennar og gjallarhorn frétta og almannavarna - allt á einu bretti. Sannkallaður þjóðarmiðill þangað sem hlustendur sóttu sér fróðleik, fréttir og skemmtun. Nú er öldin önnur og satt að segja sorglegt að horfa upp á þá hnignun sem þarna hefur orðið hin seinni ár,“ segir Ólína.
Jón Ólafsson útvarpsmaður telur að niðurskurður eigi stærstan þátt í endurfluttu efni. Stjórnendum sé vart skemmt yfir ástandinu. Heimir Már Pétursson fréttamaður á Stöð 2 bendir Jóni á að Rúv fái „BARA 7 milljarða til ráðstöfunar“. Stór hluti þess er úr vasa almennings.
Ummæli Óskars Magnússonar, fyrrum útgefanda Morgunblaðsins, vekja einnig athygli en Óskar ver fréttamennsku Fréttablaðsins.
„Ný tækni, auðveldara aðgengi, nýjar aðferðir, ný hugsun, gætu kannski hjálpað. En það verður ekki ef stjórnendur sýna þau hortugheit og slíkt önuglyndi sem Þröstur Helgason gerir þegar hann er spurður eðlilegra spurninga af Fréttablaðinu,“ segir Óskar Magnússon á þræði Ólínu Þorvarðardóttur.
Hægt er að lesa viðtalið við Þröst hér.