Hrefnu Thomsen Árnadóttur er reið og sár eftir atvik við Reynisvatn í Grafarholti um hádegisbilið í gær. Hrefna fer reglulega í gönguferðir um svæðið með hundinn sinn Grímsa en í gær varð hún vitni að mikilli mannvonsku þegar ókunnugur maður sparkaði í hundinn að ástæðulausu. Tveggja ára dóttir Hrefnu var með í för og varð vitni að atvikinu.
Hrefna vakti athygli á málinu á Hundasamfélaginu á Facebook í gær og er óhætt að segja að færslan hafi vakið mikla athygli. Hún veitti Hringbraut góðfúslegt leyfi til að fjalla um málið.
Hrefna segir að Grímsi sé algjört gull, vel upp alinn og með góða skapgerð. Atvikið sem um ræðir varð um klukkan 12:30 í hádeginu í gær og segir Hrefna að þau hafi verið við Reynisvatn þegar hún sá gönguhóp koma aðvífandi á móti þeim.
Grímsi var þarna nýbúinn að gera þarfir sínar og segir Hrefna að hún hafi kallað á hann og látið hann setjast við hliðina á henni meðan hún þreif upp eftir hann. Það sem gerðist næst rennur Hrefnu líklega seint úr minni.
Um það leyti sem hópurinn gekk framhjá segir Hrefna að maður í hópnum hafi tekið sig til og sparkað í hausinn á Grímsa. „Ég hef aldrei heyrt annað eins hljóð frá hundi, hann grét svo,“ segir Hrefna sem brást ókvæða við, eðli málsins samkvæmt. Hún hafi spurt manninn hvað honum gengi til og hann svarað því að „þessir helvítis hundar mígi og skíti“ út um allt.
„Ég var ekki beint kurteis þegar ég spurði hann hvort mamma hans og pabbi væru systkin og hvort hann væri krossþroskaheftur!“ Hefna segir að kona mannsins hafi komið að og sagt við hana að hann þoldi einfaldlega ekki hunda.
„Ég spurði hvort það gæfi honum það leyfi að sparka í hausinn á hundinum mínum og spurði hann að því hvort hann væri svo mikill aumingi að hann sparkar í saklaus dýr og þarf síðan að fá kellinguna sína til að verja sig því hann er gjörsamlega punglaus! Mikið rosalega er ég reið!!“
Hrefna segir að sem betur fer sé í lagi með Grímsa þó honum hafi vissulega verið brugðið eftir uppákomuna. Færsla Hrefnu hefur vakið mikla athygli í Hundasamfélaginu og segir margir að um sé að ræða dýraníð af verstu sort.