„Hræddur um að það verði ekkert gert í þessu fyrr en eitt­hvað al­var­legt kemur fyrir“

Íbúi í Breið­holtinu lýsir yfir miklum á­hyggjum af aukinni mótor­hjóla­notkun ung­menna í hverfinu. Hann segir ung­lingana gjarnan hjálm­laus og segir þá í­trekað keyra á göngu­stígum með þeim af­leiðingum að gangandi veg­far­endur hafa átt fótum sínum fjör að launa.

Í­búinn vill ekki láta nafn síns getið en sendi Hring­braut á­bendingu um málið í kvöld. Hann segir ekki langt að bíða þar til al­var­legt slys verður í hverfinu. Honum finnst lög­reglan á­huga­laus um málið.

„Þau bruna um göngu­stígana, milli garða og leikvalla á ógnar­hraða, kannski nokkur saman í röð og hægja ekki endi­lega á sér þegar þau nálgast aðra veg­far­endur. Stundum höfum við orðið vör við motocross hjól hérna líka, inni í miðju í­búðar­hverfi og með til­heyrandi há­vaða, jafn­vel seint á kvöldin. Við höfum tvisvar hringt á lög­reglu vegna krossarans en aldrei orðið vör við nein við­brögð frá þeim,“ segir í­búinn.

„Ég man eitt sinn eftir að hafa séð ó­fríska konu á göngu í hverfinu sem þurfti að víkja fyrir tveimur vespum á ógnar­hraða. Svo man ég sjálfur eftir því að hafa verið úti að ganga með son minn sofandi í vagni þegar hann var bara nokkurra mánaða gamall,“ segir í­búinn.

At­vikið hafi átt sér stað við Höfða­bakka í Breið­holtinu.

„Ég geng niður brattan, þröngan göngu­stíg sem liggur niður að Höfða­bakka (hrað­braut) með pod­cast í eyrunum, þegar þrjár vespur þjóta skyndi­lega fram hjá okkur á alveg svaka­legum hraða. Eitt hjólanna var svo ná­lægt mér að það rétt snerti úlpuna mína og þau hægðu ekkert á sér. Mér brá svo að ég var næstum búinn að missa tak á vagninum, sem þá hefði væntan­lega þotið á undan mér niður brekkuna og beint á hrað­brautina fyrir neðan okkur,“ segir í­búinn.

„Ég er hræddur um að það verði ekkert gert í þessu fyrr en að eitt­hvað al­var­legt kemur fyrir. Hér er mikið um græn svæði og leik­velli milli blokkanna og fullt af börnum á öllum aldri úti að leika sér sem ættu að vera örugg á göngu­stígunum í hverfinu sínu.“

Fleiri fréttir