Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, greindist með Covid-19 í gær, líkt og formaður flokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Greint var frá því í gær á RÚV að í það þrír til fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar væru smituð. Auk þeirra Guðbrands og Þorgerðar hefur Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, greint frá því á samfélagsmiðlum að vera smituð.
Þingmenn hafa allir verið boðaðir í hraðpróf á mánudag áður en þing hefst. Þau sem eru komin í einangrun eða sóttkví kalla inn sína varaþingmenn.
„Það fór ekki svo að Covidið næði manni ekki. Í dag var ég greindur smitaður og ekkert annað að gera en að draga sig í hlé og halda mig frá öðru fólki,“ segir Guðbrandur á Facebook og að það sé skrítin tilhugsun að geta ekki verið með fjölskyldunni um jólin.
„Það gerðist síðast þegar ég var sex ára. Maður þarf að hugsa sig í gegnum það næstu daga. En gott að muna að það er enginn að fara neitt og þetta tekur enda. Vonandi veikist engin alvarlega í hópnum og við komið tvíelfd til leiks á ný.“
Þorgerður Katrín tók í sama streng í gær en hún er komin í einangrun austan fjalls.