Hollywood-stjarna í Stuð­la­gili – gilið lokað næstu tvo daga

Lokað var fyrir að­gang að Stuð­la­gili, einum vin­sælasta ferða­manna­stað landsins í sumar, klukkan átta í morgun og verður hann lokaður til klukkan átta í kvöld. Það sama verður uppi á teningnum á morgun. Á­stæðan er sögð sú að þar fara fram tökur á verk­efni Hollywood-stjörnunnar Will Smith.
Frá þessu var greint í fréttum RÚV.

Herma heimildir RÚV að á svæðinu standi yfir tökur á nýjum sjón­varps­þætti Smith og munu þær fara fram ofan í sjálfu gilinu. Þá segir að sést hafi til Smith á Norður­landi að undan­förnu en um 70 manns eru sagðir vera að störfum á svæðinu, auk björgunar­sveitar­manna frá Jökli á Jökul­dal og Vopna á Vopna­firði.

Stuðlagil hefur slegið rækilega í gegn meðal íslenskra ferðamanna í sumar og líklega verið umtalaðasti ferðamannastaður landsins. Þeir sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar í dag eða á morgun verða þó að gera sér að góðu að bíða með að berja dýrðina augum.

Fleiri fréttir