„Í síðustu viku bárust þær fréttir úr Borgartúni 21 að í fyrsta skipti síðan Þjóðskrá hóf að halda utan um trúfélagsaðild Íslendinga, hafi hlutfall íbúa þessa lands sem skráð eru í Þjóðkirkjuna farið undir sextíu prósent. Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju, sagðist litlar áhyggjur hafa á frjálsu falli meðlimafjöldans í haust, eiginlegt kjörfylgi Þjóðkirkjunnar væri um sextíu prósent og þar myndi meðlimafjöldinn staðnæmast.“
Þetta segir Inga Straumland, formaður Siðmenntar í nýlegum pistli á Vísi.
„Hvort Sindri hafi rétt fyrir sér verður tíminn að leiða í ljós, en persónulega finnst mér raunar ólíklegt að svona hátt hlutfall trúi raunverulega á sköpunarsöguna og kraftaverk, eða séu yfir höfuð meðvituð um aðild sína að Þjóðkirkjunni.“
„Það er nefnilega þannig að af þeim 228.298 íbúum þessa lands sem tilheyra enn Þjóðkirkjunni, fékk stór hluti þeirra aðildina í vöggugjöf. Þó að reglurnar hafi breyst, og nú þurfi bæði foreldri að vera skráð í sama lífsskoðunarfélagið, veraldlegt eða trúarlegt, til þess að barn sé skráð í téð félag en ekki utan trúfélaga, þá byggjast þær ennþá á þeirri forsendu að það sé í lagi að ríkið ákveði félagsaðild barns, án þess að spyrja foreldrana eða jafnvel barnið sjálft. Þannig hefur stærsta félagið, sem hefur lengstu söguna og langmestu forréttindin, kerfisbundið fengið til sín sóknarbörn á grundvelli trúfélags formæðra þeirra. Og fjöldi meðlima skiptir nefnilega gríðarlegu máli fyrir félögin, því á þeim byggjast upphæðir þeirra sóknargjalda sem ríkið ráðstafar úr vasa skattgreiðanda og til lífsskoðunarfélaganna.“
„Það væri því langsamlega sanngjarnast fyrir okkur öll, sem viljum réttláta úthlutun fjár úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar og aðhyllumst raunverulegt trúfrelsi, að núllstilla einfaldlega trúfélagsskráningu þjóðarinnar hjá Þjóðskrá. Væri núllstillingin kynnt vel, gæti fólk svo umsvifalaust skráð sig aftur í það félag sem það vill helst tilheyra, enda tekur það ekki nema örfáar mínútur á skra.is.“
Greinina í heild sinni má lesa hér.