Hjólar aftur í heiðurs­konsúl Rússa: „Í hverju ætli munurinn liggi?“

Ólafur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda hefur aftur beint spjótum sínum að Ágústi Andrés­syni, yfir­manni kjöt­af­urða­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firðinga fyrir að hafa ekki af­salað sér heiðurs­konsúla­tigninni sem rúss­nesk stjórn­völd út­hlutuðu honum.

Hann hafði áður gagnrýnt Ágúst og KS fyrir tengingar sínar við Rússland.

„Það er ein­mitt það. Nokkur ís­lenzk fyrir­tæki fá fall­ein­kunn fyrir við­brögð sín við inn­rás Rúss­lands í Úkraínu,“ segir Ólafur og deilir frétt Við­skipta­blaðsins sem segir frá ís­lenskum fé­lögum á svörtum lista prófessors við banda­ríska há­skólann Yale School of Mana­gement.

Þá bendir hann á að félagið hefði brugðist harðar þegar Vitalia Lazareva ásakaði Arnar Grant um ofbeldi: „Þegar Arnar Grant, sam­starfs­aðili KS, var sakaður um of­beldi í byrjun árs, brást kaup­fé­lagið hratt við og vildi ekki láta tengja sig við slíkt. KS gaf út yfir­lýsingu um að sam­starfinu við Arnar væri slitið og í­þrótta­drykkurinn Teygur yrði tekinn úr sölu,“ segir Ólafur og telur að KS finnist í lagi að vera tengd við Rússa.

„Marg­sannað og yfir­gengi­legt of­beldi Rúss­lands í Úkraínu (þar með talið ó­lýsan­legt of­beldi gegn úkraínskum konum) gefur kaup­fé­lags­mönnum hins vegar enga á­stæðu til að hug­leiða einu sinni tengsl sín við rúss­nesk stjórn­völd,“ segir Ólafur og spyr að lokum:

„Í hverju ætli munurinn liggi?“

Fleiri fréttir